【實用教育app】Froskaleikur 3|最夯免費app

【實用教育app】Froskaleikur 3|最夯免費app

分享好友

【免費教育App】Froskaleikur 3-APP點子

SÍÐUSTU HLJÓÐIN í máltökunni eru æfð í Froskaleik 3. Í leiknum þurfa börnin að hjálpa Hoppa að finna lykillinn að galdrakastalanum. Þetta er síðasta þrautin sem þarf að leysa til að komast inn í kastalann. Þegar inn er komið þarf að útbúa galdraseyðið sem Hoppi þarf að drekka svo hann fái málið aftur. Það er gert með skemmtilegum æfingum þar sem farið er í gegnum síðustu hljóðin sem börn tileinka sér í máltökunni í íslensku: /ng, ð, þ, s, mjúka g, hn/. Bókstafir málhljóðanna sem ekki eru sögð fremst í orðum eru merktir sérstaklega þar sem þeir koma fyrir í orðum. Sólin í hverju borði gefur greinargóðar upplýsingar um hvað á að gera hverju sinni.UM LEIKINA 1 2 3Froskaleikirnir segja frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl lagði á hann álög. Í þremur mismunandi sjálfstæðum hljóðgreiningarleikjum fyrir barnafjölskyldur þarf Hoppi að leysa ýmsar þrautir til að komast í kastalann sem geymir lausnina að því að hann nái málinu aftur. Börnin æfa íslensku málhljóðin í erfiðleikaröð þeirra, frá fyrsta í gegnum þriðja froskaleikinn, með æfingum í hljóðavitund, hljóðgreiningu, tengingu hljóðs við bókstaf, mynd af orði og skrifuðu orði. Allt eru þetta mjög mikilvægir þættir í hljóðkerfisvitund og nefnuhraða til undirbúnings læsi og lesfimi. Höfundur smáforritsins er talmeinafræðingur með margra ára reynslu í starfi á Íslandi. Efnistök smáforritsins byggja á rannsóknum um hvaða grunnfærni einstaklingur þarf að hafa til að læra að lesa; m.a. ákveðnum þáttum í hljóðkerfisvitund og úrvinnslu, vitund um letur, gott talmál og að kalla fram hljóðrænar upplýsingar í orðaminni þegar þekkja á skrifuð orð. Allir þessir þættir stuðla að lestrarnákvæmni og lestraröryggi sem er forsenda sjálfvirkni í lestri. Þá er góður málskilningur og orðaforði undirstaða fyrir góðan lesskilning og í smáforritinu eru hundruð orða kennd með íslenskum teikningum Höllu Sólveigar Þorgeirsdóttur og Búa Kristjánssonar auk þess sem öll orð eru talsett af Védísi Hervöru Árnadóttur og Felix Bergssyni. Forritið er fyrir börn frá 4 – 5 ára aldri og hentar langt fram á grunnskólaaldur, eftir eðli mála. Forritið gefur möguleika á að velja léttari æfingar fyrir byrjendur.Smellið á blikkandi sjónvarp efst uppi til hægri til að heyra söguna í upphafi. Í fyrstu umferð þarf nemandi að klára öll borðin í hverju hljóði og fá 4 stjörnur. Annars hoppar Hoppi ekki áfram. Svo æfir barnið hljóðin í röð. Þannig opnast á öll hljóðin síðar og nemandi getur valið hljóð af handahófi. Markmiðið er að þjálfa ákveðin hljóð fyrst og gera þetta með stigvaxandi þyngd. Svo má leika sér að vild. Málhljóðin í Froskaleiknum eru æfð í gegnum leik þar sem lögð er áhersla á: 1) Hljóðavitund. Kynning á bókstaf, hljóði og fingrastafrófi. Þá er fyrirmynd fyrir hljóðið kynnt með vísan í heyrn- sjónrænt minni með lítilli sögu fyrir hvert hljóð 2) Hljóðatenging og umskráning: lítill/stór stafur. Bókstafur tengdur við hljóðið sem sýnt er með vísan í táknmynd þess. Umskráning æfð sem mikilvæg er til undirbúnings lestrarferlinu. Stjörnugjöf og stika sem sýnir hversu langt þú ert komin/n í leiknum 3) Hljóðgreining. Hljóð tengt við mynd þar sem tengja þarf rétt hljóð við rétt orð. Stjörnugjöf og stika sem sýnir þér hversu langt þú ert komin/n í leiknum 4) Hljóðgreining og skrifað orð, nefnuhraði > að þekkja skrifað orð og kalla fram úr orðasafni hljóðrænar upplýsingar. Barnið smellir á skrifuðu orðin til að heyra heiti þeirra, hlustar vel á orðin og velur rétta hljóðamynd fyrir hljóðið. Smám saman tileinkar barnið sér ákveðna sjálfvirkni í að lesa ritháttarmyndina fyrir orðið og tengir við hljóðkerfisvitundina

【免費教育App】Froskaleikur 3-APP點子

【免費教育App】Froskaleikur 3-APP點子

【免費教育App】Froskaleikur 3-APP點子

【免費教育App】Froskaleikur 3-APP點子

免費玩Froskaleikur 3 APP玩免費

免費玩Froskaleikur 3 App

Froskaleikur 3 APP LOGO

Froskaleikur 3 LOGO-APP點子

Froskaleikur 3 APP QRCode

Froskaleikur 3 QRCode-APP點子
熱門國家系統支援版本費用APP評分上架日期更新日期
未知iOS
App Store
1.0.1
App下載
$11.99
2014-11-182015-06-03
分享app
上一個APP
下一個APP

高評價教育App推薦

Assas.net

Disponible sur tablettes et smartphones, l'application Assas.net est la première application mobile multiplateforme de l'Université Paris II P …